Úlfarsfell
- Lýsing
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar fer af stað á ný. Gengið verður á sex fjöll þetta árið, þrjú að vori og þrjú að hausti. Verkefninu lýkur með göngu á Sogin, Spákonuvatn og Grænavatn. Þau sem ganga á öll fjöllin fá viðurkenningaskjal og titilinn Fjallagarpur Ferðafélags barnanna.
Fyrsta gangan af sex í fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar er á Úlfarsfell sem er þægilegt og aðgengilegt. Farið verður rólega og ætti gangan því að vera við allra hæfi. Muna eftir nesti og góðum skóm. 2-2,5 klst.- Brottför/Mæting
- Kl. 17 frá bílastæðinu við Úlfarsfell Mosfellsbæjar megin.
- Fararstjórn
Búnaður
Pakkað fyrir dagsferð
Dagsferðir eru mismunandi og geta tekið frá örfáum klukkustundum upp í hálfan sólarhring. Listinn hér að neðan er því ekki tæmandi, heldur aðeins til viðmiðunar. Endanlegur búnaður fer eftir persónulegum þörfum, lengd ferðar, veðri og árstíma.
Göngufatnaður
- Góðir gönguskór og mjúkir göngusokkar
- Nærföt, ull eða flís, eftir veðri
- Peysa úr ull eða flís
- Göngubuxur / stuttbuxur
Í dagpokanum
- Bakpokahlíf / plastpoki inni í bakpokanum
- Áttaviti, landakort og GPS tæki
- Smurt nesti fyrir daginn
- Göngunasl svo sem þurrkaðir ávextir, súkkulaði og hnetur
- Vatnsbrúsi
- Hitabrúsi með kakói, tei eða kaffi
- Göngustafir
- Myndavél og kíkir
- Sólgleraugu / skíðagleraugu
- Sólarvörn og varasalvi
- Hælsærisplástur, plástur, teygjubindi og verkjalyf
- Salernispappír, blautþurrkur og litlir plastpokar fyrir notaðan pappír
- Húfa, vettlingar og buff um hálsinn
- Vind- og vatnsþéttur hlífðarfatnaður
- Legghlífar, vaðskór og broddar, ef þurfa þykir
Fjallagarpaverkefni fjölskyldunnar
- 15. maí: Úlfarsfell
- 21. maí: Selfjall
- 2. júní: Þyrill
- 28. ágúst: Helgarfell í Mosfellsdal
- 8. september: Vífilsfell
- 21. september: Sogin, Spákonuvatn og Grænavatn
Fyrir félaga FÍ og fjölskyldur þeirra. Ekkert að panta, bara mæta!